Fréttasafn

Landsvirkjun afhendir Vegagerðinni Kárahnjúkaveg

11.3.2010

Landsvirkjun og Vegagerðin hafa undirritað samning sín á milli um að forræði og umsjón með Kárahnjúkavegi, og að hluta á Hraunavegi, færist yfir til Vegagerðarinnar.

Með samningi þessum afhendir Landsvirkjun Vegagerðinni áðurnefnda vegi, án greiðslna eða endurgjalds. Vegirnir voru lagðir af Landsvirkjun í tengslum við rannsóknir og framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun.

Landsvirkjun afhendir Vegagerðinni Kárahnjúkaveg til umráða

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar og Hreinn Haraldsson, vegamálastjóri,
handsala samning um afhendingu Kárahnjúkavegar.

Við afhendingu flytjast hverskonar ábyrgðir og skyldur vegna þessara vega yfir til Vegagerðarinnar, það er þjónusta og viðhald þeirra. Kárahnjúkavegur og Hraunavegur að hluta voru afhentir Vegagerðinni þann 31. desember 2009. Landsvirkjun mun á árinu 2010 leggja klæðningu á hluta Kárahnjúkavegar og gera við axlir vegarins þar sem þess þykir þörf með tilliti til umferðaröryggis.

„Það er alltaf ánægjulegt að taka við vegum sem munu nýtast almenningi vel þótt þeir séu ekki endilega fjölförnustu vegir landsins. Umræddir vegir verða í flokki landsvega en á þeim vegum er yfirleitt gert ráð fyrir árstíðabundinni umferð og því minna eftirliti og minni þjónustu en á öðrum þjóðvegum,“ segir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri.

„Landsvirkjun og Vegagerðin hafa alla tíð átt farsælt samstarf og hefur Landsvirkjun að afloknum virkjunarframkvæmdum afhent Vegagerðinni fjölmarga vegi til eignar og bætist nú Kárahnjúkavegur við,“ segir Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar.

Vegirnir sem samtals eru röskir 60 km að lengd flokkast undir landsvegi. Kárahnjúkavegur liggur frá þjóðvegi 931 að vegamótum Brúardalaleiðar vestan Jökulsár á Dal, og flyst umsjón með veginum í heild yfir til Vegagerðarinnar, að undanskildum vegarkaflanum frá austurenda Desjarárstíflu vestur fyrir áningarstað ferðamanna við Kárahnjúkastíflu.

Sá hluti Hraunavegar sem færist yfir til Vegagerðarinnar er frá vegamótunum við Kárahnjúkaveg skammt suður fyrir áningarstað við Laugafell. Í fylgiskjali A er vegakerfið á svæðinu sýnt.

Fylgiskjal A >>

 

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica