Enn opið fyrir umsóknir í Margar hendur vinna létt verk
Landsvirkjun auglýsir eftir samstarfsaðilum að verkefninu Margar hendur vinna létt verk.
Landsvirkjun hefur um áratugi starfrækt sumarvinnuflokka ungs fólks. Hóparnir sinna viðhaldi, uppbyggingu og snyrtingu í starfsstöðvum Landsvirkjunar og vinna jafnframt að ýmsum samstarfsverkefnum víða um land.
Samvinna sumarvinnuflokka Landsvirkjunar og félagasamtaka, sveitarfélaga og stofnana hefur skilað sér í auknum umhverfisgæðum og fjölmörgum dæmum um bætta aðstöðu til útivistar og ferðamennsku.
Í boði er vinnuframlag sumarvinnuflokka og flokksstjórn yfir þeim. Verkefnin lúta að ræktun, hreinsun, viðhaldi og öðrum umhverfisbótum ásamt stígagerð og stikun gönguleiða.
Óskað er eftir að samstarfsaðilar leggi fram vel skilgreind verkefni.
Umsóknarfrestur rennur út 30. apríl.
Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Ólafsdóttir, umhverfisstjóri Landsvirkjunar, í síma 515 9000 – ragnheidur hjá lv.is.
