Fréttasafn

Landsvirkjun styður MIT Global Startup Workshop 2010 í Reykjavík

24.3.2010

Landsvirkjun er meðal stuðningsaðila MIT Global Startup Workshop 2010. MIT Global Startup Workshop (MIT GSW) er alþjóðleg ráðstefna um nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi sem haldin hefur verið árlega frá 1998 með þátttakendum frá allt að 60 löndum.

MIT GSW Global Startup WorkshopRáðstefnan fer fram á Hilton Hotel Nordica í Reykjavík dagana 24.-26. mars.

Um 350 gestir sækja ráðstefnuna árlega og hefur hún öðlast mikilvægan sess í alþjóðlegu samfélagi nýsköpunar. MIT GSW er framúrskarandi vettvangur til að efla þekkingu og tengslamyndun milli háskólanema, frumkvöðla, sprotafyrirtækja, fjárfesta, háskólakennara, fyrirtækja og stofnanna frá öllum heimsálfum.

Ráðstefnan er skipulögð af hópi MBA nema við Háskólann í Reykjavík í samvinnu við nemendur frá MIT háskólanum í Boston og Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðlasetur.

Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er „Conquering the Economic Crisis with Innovation, Entrepreneurship and Green Energy“.

Meðal þátttakenda á ráðstefnunni er Bjarni Bjarnason, forstjóri Landsvirkjun Power. Hann heldur fyrirlestur um umhverfisvæna orku og orkunýtingu á Íslandi.

Dagskrá ráðstefnunnar er að finna á vef ráðstefnunnar.

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica