Fréttasafn

Yfirlýsing frá Landsvirkjun vegna fréttar Umhverfisráðuneytisins

6.4.2010

Í frétt frá umhverfisráðuneytinu þann 31. mars 2010 er greint frá því að ábendingar hafi borist um að skilyrði í úrskurði ráðherra um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar hafi ekki verið uppfyllt og að ráðherra hafi falið Umhverfisstofnun að kanna málið.

Í tilefni af þessu er rétt að upplýsa að Landsvirkjun telur sig í einu og öllu hafa uppfyllt nefnd skilyrði frá upphafi framkvæmda. Í því sambandi er rétt að benda á að frá árinu 2003 hefur starfað sérstök eftirlitsnefnd til að fylgjast með þessu og sitja í henni fulltrúar sveitarfélaga á svæðinu sem gáfu út framkvæmdaleyfi fyrir Kárahnjúkavirkjun, svo og fulltrúi iðnaðarráðherra, sem gaf út virkjunarleyfi og fulltrúi umhverfisráðherra.

Landsvirkjun hefur reglulega gefið nefnd þessari skýrslu um það hvernig skilyrðin hafa verið uppfyllt. Fyrirtækið vinnur nú að lokaskýrslu um málið sem reiknað er með að verði tilbúin um miðjan apríl.

Landsvirkjun hafa engar ábendingar eða athugasemdir borist sem benda til þess að skilyrðin hafi ekki verið uppfyllt. Landsvirkjun mun að sjálfsögðu upplýsa Umhverfisstofnun og umhverfisráðuneytið um málið ef eftir því verður leitað. Finnist eitthvað athugavert mun fyrirtækið bæta þar úr.
 

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica