Fréttasafn

Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir við kaup Landsvirkjunar í Þeistareykjum ehf.

7.4.2010

Samkeppniseftirlitið gerir samkvæmt ákvörðun nr. 9/2010 ekki athugasemdir við kaup Landsvirkjunar á tæplega 32% hlut Norðurorku hf. í Þeistareykjum ehf. Fyrir átti Landsvirkjun tæp 32% í Þeistareykjum ehf.

Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins kemur fram að það telji óljóst hversu mikið eða hvenær markaðshlutdeild Landsvirkjunar kunni að styrkjast vegna orkuvinnslu á Þeistareykjum. Ekki liggi fyrir hversu mikla raforku mögulegt sé að vinna á svæðinu og auk þess sé óljóst hver myndi kaupa orkuna. Með hliðsjón af því telur Samkeppniseftirlitið að ekki séu forsendur til þess að aðhafast vegna samruna Landsvirkjunar og Þeistareykja ehf.

Þeistareykir ehf. voru stofnaðir árið 1999 með það að markmiði að hefja orkurannsóknir á Þeistareykjum. Árið 2005 keypti Landsvirkjun 32% hlutafjár í Þeistareykjum ehf. Aðrir núverandi hluthafar eru Orkuveita Húsavíkur og Þingeyjarsveit.

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica