Fréttasafn

Landsvirkjun vinnur að framkvæmd skilyrða vegna Kárahnjúkavirkjunar

20.4.2010

Landsvirkjun hefur lokið við greinargerð um framkvæmd skilyrða vegna umhverfisáhrifa Kárahnjúkavirkjunar.

Í bréfi til iðnaðarráðuneytisins kemur fram að skilyrðin tuttugu séu uppfyllt að því marki sem unnt sé á þessu stigi en skilyrtar langtímarannsóknir og vöktun munu halda áfram. Greinargerðin gefur yfirlit um þær aðgerðir sem lokið er, og skýringar á forsendum vöktunaráætlana.

Við veitingu virkjunarleyfis iðnaðarráðherra vegna Kárahnjúkavirkjunar voru framkvæmdaraðila, í þessu tilviki Landsvirkjun, sett skilyrði í tuttugu liðum. Skilyrðin voru upphaflega sett fram í úrskurði umhverfisráðherra um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar þann 20. desember 2001. Landsvirkjun hefur nú sent greinargerð um framkvæmd þessara skilyrða til iðnaðarráðuneytisins.

Staða rofvarna við Hálslón - forsíðaNý skýrsla um stöðu rofvarna
Landsvirkjun hefur einnig lokið við gerð skýrslu um stöðu rofvarna við Hálslón, er varða sérstaklega skilyrði nr. 4 í úrskurði umhverfisráðherra. Skýrslan var einnig send iðnaðaráðuneytinu sem er í forsvari sérstakrar eftirlitsnefndar sem hefur það hlutverk að fylgjast með framkvæmd skilyrðanna.

Nánari upplýsingar
Greinargerð Landsvirkjunar vegna skilyrða
umhverfisráðherra

Skýrsla Landsvirkjunar um rofvarnir og gróðurvernd
við Hálslón

Senda grein


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica