Landsvirkjun og Íslandsbanki semja um veltilán í íslenskum krónum
Landsvirkjun og Íslandsbanki skrifuðu í dag undir samning um veltilán að fjárhæð 3 milljarða króna.
Lánstími er þrjú ár og ber lánið Reibor millibankavexti auk mjög hagstæðs álags. Lánið er svokallað veltilán og getur Landsvirkjun dregið á það eftir þörfum með litlum fyrirvara.
Veltiláninu er ætlað að auka enn frekar aðgengi Landsvirkjunar að fyrirvaralítilli fjármögnun í íslenskum krónum og bæta þar með lausafjárstöðu fyrirtækisins. Landsvirkjun hefur nú þegar aðgang að öðru veltiláni í erlendri mynt eða um 280 milljónum Bandaríkjadala.
Lausafjárstaða Landsvirkjunar er góð, lausafé fyrirtækisins er nú um 110 milljónir Bandaríkjadala, en að viðbættum áður nefndum lánalínum hefur fyrirtækið aðgang að jafnvirði um 410 milljónum Bandaríkjadala, sem svarar til um 52 milljarða króna. Landsvirkjun hefur þannig þegar tryggt fjármagn sem ásamt fé frá rekstri dugar til að standa við allar núverandi skuldbindingar til ársloka 2012.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:
„Þetta sýnir fyrst og fremst að bankinn hefur fulla burði til að veita fyrirtækjum á Íslandi þá þjónustu sem þau þurfa á að halda sem er ekki síst mikilvægt í því uppbyggingarstarfi sem framundan er í efnahagslífinu. Samstarf okkar við Landsvirkjum hefur ávallt verið gott og við erum ánægð með að vinna með svo traustu og öflugu fyrirtæki.“
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar:
„Þessi samningur er mjög jákvæður fyrir Landsvirkjun en með honum tryggir fyrirtækið enn frekar lausafjárstöðu sína sem er þó góð fyrir. Samningurinn endurspeglar gott aðgengi að fjármagni hér á landi og gott samstarf Íslandsbanka og Landsvirkjunar.“

Á myndinni eru frá vinstri, Vilhelm Már Þorsteinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Íslandsbanka, Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar og Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar.
