Eldgos hefur engin áhrif á starfsemi Landsvirkjunar
Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur fram til þessa ekki haft nein áhrif á raforkuvinnslu Landsvirkjunar. Neyðarstjórn Landsvirkjunar hefur frá upphafi goss á Fimmvörðuhálsi og síðan Eyjafjallajökli fylgst með framvindu mála og verið í viðbragðsstöðu.
Viðbragðsáætlun Landsvirkjunar tekur meðal annars til vöktunar á loftræsti- og kælikerfum, þéttleika bygginga og samgangna til aflstöðva fyrirtækisins komi þær til með að raskast af völdum öskufalls eða flóða.
Viðbragðsáætlun Landsvirkjunar vegna eldgossins er einnig unnin í samstarfi við Neyðarsamstarf raforkukerfisins (NSR) sem er með fulltrúa í Samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð. NSR er samvinnuvettvangur vinnslufyrirtækja, flutningsfyrirtækis, dreifiveitna, stórnotenda og opinberra aðila á Íslandi vegna vár sem steðjar að raforkukerfi landsins. NSR miðlar upplýsingum eftir því sem framvinda atburða gefur tilefni til.
Landsvirkjun mun áfram vakta áhrif eldgossins á stöðvar og aðra starfsemi fyrirtækisins, grípa til viðeigandi viðbragða gerist þess þörf og miðla upplýsingum af framvindu mála.
Fréttir af gosinu birtast reglulega á vef almannavarna http://www.almannavarnir.is/.
