Kynningar á frummatsskýrslum á Norðausturlandi
Eftirtaldar kynningar verða haldnar á frummatsskýrslum um mat á umhverfisáhrifum fyrir Kröfluvirkjun II, Þeistareykjavirkjun, háspennulínur frá virkjunum að álveri, álver á Bakka og sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmdanna fjögurra:
Opið hús verður í Ýdölum, Þingeyjarsveit mánudaginn 3. maí kl. 15:00-18:00
Opið hús verður á Fosshótel Húsavík mánudaginn 3. maí kl. 20:00-23:00
Opið hús verður í Reykjahlíðarskóla í Mývatnssveit 4. maí kl. 16:00-19:00
Fyrirkomulag kynninga verður þannig að um 30 mín eftir að húsið opnar verða stuttar formlegar kynningar á öllum framkvæmdum. Fulltrúar framkvæmdaraðila svara fyrirspurnum og frekari upplýsingar um allar framkvæmdir verða á veggspjöldum.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Frummatsskýrslur :
- Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum
- Kröfluvirkjun II: Frummatsskýrsla og viðaukar
- Þeistareykir: Frummatsskýrsla
- Háspennulínur: Frummatsskýrsla og viðaukar
- Álver á Bakka: Frummatsskýrsla og viðaukar
