Opið hús í Reykjavík - Kynning á framkvæmdum á Norðausturlandi
Athugun Skipulagsstofnunar er hafin á frummatsskýrslum um mat á umhverfisáhrifum fyrir Kröfluvirkjun II, Þeistareykjavirkjun, háspennulínur frá virkjunum að álveri, álver á Bakka og sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmdanna fjögurra. Í tilefni þess verður opið hús á Hótel Nordica mánudaginn 10. maí nk. Kl: 15:00-19:00 þar sem frummatsskýrslur verða kynntar.
Fyrirkomulag verður þannig að húsið opnar kl: 15:00 en kl:16:30 verða stuttar formlegar kynningar á öllum framkvæmdum. Fulltrúar framkvæmdaraðila svara fyrirspurnum og frekari upplýsingar um allar framkvæmdir verða á veggspjöldum.
Allir velkomnir.
Landsvirkjun, Landsnet, Þeistareykir ehf. og Alcoa
