Landsvirkjun tekur við i MiEV rafbíl frá Mitsubishi
Í dag fengu Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur og Iðnaðarráðuneytið afhenta tvo fjögurra manna i MiEV rafbíla frá Mitsubishi. Ráðuneytið hefur afnot af öðrum bílnum næstu tvö árin. Orkuveita Reykjavíkur og Landsvirkjun munu nota hinn bílinn til ýmissa rannsóknarverkefna.
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, sagði að rafbílarnir væru tákn um þann ásetning stjórnvalda að stórauka notkun á innlendu eldsneyti í samgöngum þannig að hægt væri að draga verulega úr innflutningi jarðefnaeldsneytis.
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, sagði að Landsvirkjun væri með þrjá vetnisbíla í notkun í samstarfi við Íslenska NýOrku. Landsvirkjun mun nýta þennan nýja rafmagnsbíl við aflstöðvarnar við Sog og á Þjórsársvæðinu. Fróðlegt verður að sjá hvernig bíllinn nýtist til langferða á milli stöðvanna. Hörður hrósaði einnig Íslenskri NýOrku fyrir ötula starfsemi við prófanir og rannsóknir á nýjum orkugjöfum.
Bæði Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur hafa sett sér markmið í visthæfri samgöngustefnu um að auka hlutdeild visthæfra bíla í notkun innan fyrirtækjanna.
Íslensk NýOrka sem hingað til hefur að mestu leyti rannsakað notkun vetnisbíla á Íslandi, mun fylgjast með notkun þessara nýju rafbíla og nota þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á vetnisbílum til samanburðar. Orkusetrið á Akureyri og Háskólinn á Akureyri vinna með NýOrku að rannsóknarhlutanum. Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar, Hekla og NORA styrkja alla rannsóknarvinnu í verkefninu.
Bílaleiga Akureyrar er einnig þátttakandi í verkefninu og hefur fyrirtækið nú fengið umhverfisvottun. Markmið bílaleigunnar er að fjölga visthæfum bílum í flota bílaleigunnar.

Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra
og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar við afhendingu rafbílanna.
