238 sumarstörf á vegum Landsvirkjunar í ár
Unglingarnir og háskólanemar eru einkum við störf á aflstöðvum Landsvirkjunar. Í sumar eru ráðnir 187 unglingar til starfa og 51 háskólanemi.
Verkefni sumarvinnuhópa á aflstöðvum Landsvirkjunar eru fjölbreytt. Þeir sjá um almenna hirðu í kringum stöðvar og mannvirki fyrirtækisins. Þá koma hóparnir í auknum mæli að endurbótum á aðstöðu ferðamanna, vegagerð og ýmsu sem bætir aðkomu að virkjunar- og ferðamannasvæðum. Móttaka ferðamanna á aflstöðvum skipar einnig stóran sess í starfi sumarvinnuhópanna. Í sumar starfa sumarvinnuhópar við stöðvarnar í Búrfelli, Blöndu, Kröflu, Laxá, Soginu, Fljótsdal og við mannvirki Landsvirkjunar í Reykjavík.
Umhverfishópar Landsvirkjunar eru einnig á ferðinni um nánast allt landið. Þeir sinna verkefnum undir heitinu Margar hendur vinna létt verk. Félagasamtök, sveitarfélög og stofnanir geta sótt um að taka þátt í þessu verkefni. Landsvirkjun leggur fram vinnuframlag sumarvinnuflokka og flokksstjórn yfir þeim. Verkefnin lúta að ræktun, hreinsun, viðhaldi og öðrum umhverfisbótum ásamt stígagerð og stikun gönguleiða.
Sumarvinnufólk Landsvirkjunar fær fræðslu og situr námskeið af ýmsu tagi. Allir hópar fá námskeið í skyndihjálp og öryggisfræðslu. Einnig er boðið upp á fræðslu um fjármál og forvarnir. Lögð er áhersla á að kynna félagið sem eftirsóknarverðan vinnustað til framtíðar fyrir bæði kynin. Ekki má gleyma afþreyingu og skemmtun hjá unga fólkinu. Hóparnir taka upp á ýmsu skemmtilegu á hverjum vinnustað.
Flestir háskólanemarnir fá sumarstarf í tengslum við sitt nám. Einhverjir starfa sem verkstjórar í sumarvinnu unglinga. Þau hafa mörg hver verið sjálf í sumarvinnunni og sækjast eftir útivinnu. Háskólanemum er einnig boðið upp á fræðslu um umhverfis- og öryggismál. Þeir kynna sér starfsemi Landsvirkjunar og LV Power og heimsækja Sogsstöðvarnar.

