Fréttasafn

Nýir möguleikar tengdir hækkandi raforkuverði í Evrópu

27.5.2010

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar fjallaði um hækkandi raforkuverð í Evrópu á morgunverðarfundi Arion banka um orkumál. Hörður benti á að mögulegt væri að hækka raforkuverð á Íslandi í tengslum við tengingu við Evrópumarkað, til dæmis með lagningu sæstrengs.

Í erindinu fjallaði Hörður um breytingar á íslenskum og erlendum raforkumörkuðum. Hörður sagði að sæstrengur hefði verið í skoðun frá 1980 og að lagning hans hafi verið tæknilega möguleg frá árinu 1995. Í erindinu kom fram að hækkandi raforkuverð á síðustu árum hafi gert verkefnið fjárhagslega áhugavert. Einnig kom fram að evrópumarkaður gæti verið viðbót við núverandi markað en kæmi ekki í staðinn fyrir hann.

Hörður lagði jafnframt áherslu á að Landvirkjun sæi ekki fyrir sér stórfelldan útflutning á raforku um sæstreng, heldur sölu á umframorku inn á Evrópumarkað þegar raforkuverð þar væri í hámarki. Þá benti Hörður á að mögulegt væri að flytja orku til Íslands í gegnum sæstreng og auka þannig afhendingaröryggi íslenska raforkukerfisins.

Landsvirkjun mun halda áfram athugun á lagningu sæstrengs í samræmi við þær breytingar sem nú eiga sér stað á evrópskum raforkumarkaði. Niðurstöðu er ekki að vænta fyrr en í fyrsta lagi eftir eitt og hálft til tvö ár.

Kynning Harðar frá fundi Arion banka >>

 Hörður Arnarson - Arion banki 2010/05/20

 

 

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica