Fréttasafn

Landsvirkjun og Vodafone undirrita fjarskiptasamning

2.6.2010

Samningur um fjarskiptaþjónustu Vodafone við Landsvirkjun var undirritaður í gær. Samningurinn var gerður að undangengnu útboði og er það í fyrsta sinn sem Landsvirkjun býður út fjarskiptaþjónustu.

Þjónusta Vodafone nær til fastlínusímtala, GSM þjónustu og gagnanetstenginga. Landsvirkjun lækkar fjarskiptakostnað sinn umtalsvert með útboðinu. Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar og Ómar Svavarsson forstjóri Vodafone undirrituðu samninginn.

Vodafone mun samkvæmt samningnum annast alla almenna fjarskiptaþjónustu fyrir Landsvirkjun og dótturfélögin Landsnet og Landsvirkjun Power næstu fjögur árin. Hörður Arnarson segir útboðið og samninginn til marks um áherslu á hagkvæmni í rekstri Landsvirkjunar. „Það er ánægjulegt að hafa náð hagkvæmum samningi um þessa mikilvægu þjónustu,“ segir Hörður Arnarson.

Ómar Svavarsson býður Landsvirkjun velkomna í hóp viðskiptavina Vodafone, sem fyrir þjónustar mörg af stærstu fyrirtækjum og sveitarfélögum landsins. Hann segir að mörg fyrirtæki hafi náð fram verulegum sparnaði með útboðum og Vodafone sé stolt af því að stuðla að hagkvæmari rekstri íslenskra fyrirtækja. Samningurinn við Landsvirkjun sé sérstaklega ánægjulegur, þar sem um er að ræða eitthvert öflugasta fyrirtæki landsins sem geri miklar kröfur um áreiðanleika kerfa og góða þjónustu.

 Undirritun fjarskiptasamnings á milli Landsvirkjunar og Vodafone 

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar (til vinstri) og Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone undirrita fjarskiptasamninginn.

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica