Fréttasafn

Sumarrennsli Jökulsár í Fljótsdal sýnilegt á vef Landsvirkjunar

3.6.2010

Landsvirkjun birtir nú á vef sínum upplýsingar um sumarrennsli Jökulsár í Fljótsdal. Eftir gerð Hraunaveitu hefur rennsli Jökulsár í Fljótsdal minnkað en lögð er áhersla á að fylgjast vel með rennsli árinnar.

Gera má ráð fyrir að rennsli Jökulsár á Fljótsdal sé lítið að vetri til og fram á sumar, en aukist seinni hluta sumars þegar Hálslón og Kelduárlón eru nánast full.

Línuritið á vefnum sýnir upplýsingar um rennsli árinnar frá 1. júní til 30. september. Birtar eru upplýsingar um rennsli við Hrakstrandarfoss sem er rétt fyrir neðan Ufsarlón og við Hól áður en áin sameinast frárennsli Fljótsdalsstöðvar.

Einnig sýnir línuritið áætlað meðalrennsli ásamt hámarks og lágmarksrennsli frá 1950 til 2004.

Línuritið er aðgengilegt á síðu Fljótsdalsstöðvar með því að smella á tengilinn til hægri á síðunni.

Skoða síðu með línuriti yfir sumarrennsli Jökulsár í Fljótsdal >>

  Rennsli Jökulsár í Fljótsdal á milli Kelduárlóns og Hóls 

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica