Landsvirkjun, kínverska fyrirtækið CWE og Exim Bank undirrita viljayfirlýsingu
Viljayfirlýsing um samstarf á milli Landsvirkjunar annars vegar og China International Water & Electric Corporation (CWE) og Export-Import Bank of China (Exim Bank) hins vegar var undirrituð í morgun.
Yfirlýsingin er liður í að stuðla að jákvæðum samskiptum og viðskiptum á milli Íslands og Kína og ánægjulegt er að tekist hafi að koma á sambandi við þessa aðila.
Yfirlýsingin felur ekki í sér skuldbindingu af hálfu þessara þriggja aðila en í henni kemur fram áhugi CWE á að bjóða í framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun sem og áhugi Landsvirkjunar á að fá tilboð frá fyrirtækinu.
Þá lýsir Exim Bank yfir áhuga á að fjármagna hluta verksamninga sem CWE kann að vinna fyrir Landsvirkjun að undangengnu útboði.
CWE er eitt stærsta verktakafyrirtæki Kína og er hér á landi ásamt fjölmennri kínverskri sendinefnd. Export-Import Bank of China er í eigu kínverska ríkisins og hefur meðal annars það hlutverk að styðja við kínversk fyrirtæki í útflutningi.
