Yfirlýsing frá Landsvirkjun vegna úrskurðar kærunefndar útboðsmála
Kærunefnd útboðsmála birti í gær úrskurð í kærumáli Verktakafélagsins Glaums ehf. og Árna Helgasonar ehf. gegn Landsvirkjun.
Tildrög málsins eru þau að með kæru dagsettri 21. apríl 2010 kærði Verktakafélagið Glaumur ehf. og Árni Helgason ehf. synjun Landsvirkjunar á tilboði fyrirtækjanna í upphafsverk Búðarhálsvirkjunar, en fyrirtækin tvö voru saman lægstbjóðandi í verkið. Landsvirkjun synjaði lægstbjóðanda á grundvelli þess að fyrirtækin tvö uppfylltu ekki skilyrði útboðsgagna um hæfni. Alls voru bjóðendur í verkið sjö.
Í kæru lægstbjóðanda var meðal annars gerð sú krafa að útboð Landsvirkjunar yrði ógilt á grundvelli þess að bjóða hefði átt verkið út á evrópska efnahagssvæðinu. Megin niðurstaða kærunefndar er sú að fallist var á þá kröfu kæranda að auglýsa hefði átt útboðsverkið á evrópska efnhagssvæðinu.
Niðurstaða úrskurðarins er vonbrigði fyrir Landsvirkjun, þar sem hún hefur í för með sér að umtalsverðar tafir verða á upphafi framkvæmda við Búðarhálsvirkjun. Líklegt er í ljósi úrskurðarins og þess tíma sem útboðsferli innan evrópska efnahagssvæðisins tekur að framkvæmdir við Búðarháls hefjist í fyrsta lagi á haustmánuðum þessa árs.
