Fréttasafn

Ný ljósmyndasýning opnuð í Búrfellsstöð

11.6.2010

Í Búrfellsstöð hefur verið opnuð ljósmyndasýningin Gengið að verki með ljósmyndum Jakobs Jakobssonar.

Ljósmyndirnar eru flestar frá sjöunda áratug síðustu aldar og sýna mannlíf við uppbyggingu mannvirkja á Íslandi, meðal annars Búrfellsvirkjunar og álversins í Straumsvík.

Ljósmyndasýningin er opin alla daga vikunnar frá klukkan 10-18. Sýningin er opin öllum og er aðgangur ókeypis. Síðasti sýningardagur er 15. ágúst. Í Búrfellsstöð er jafnframt hægt að kynnast orkuvinnslu úr vatnsafli og skoða stöðina á opnunartíma hennar.

Ljósmyndasýning Jakobs í Búrfellsstöð er hluti af heild sem sýnd var í Ljósmyndasafni Reykjavíkur síðast liðið vor. Í umsögn um sýninguna segir: „Jakob horfir á mannvirkin sem rísa af grunni af sama sjónarhóli og hann skoðar heiminn og er sýn hans ákaflega mannleg. Hvort sem hann tekur myndir úr nálægð eða úr fjarska leggur hann áherslu á fólk, sem er niðursokkið í viðfangsefni sín".

  Jakob Jakobsson - Bygging inntaksmannvirkja í Búrfellsvirkjun

Jakob Jakobsson: Frá byggingu stíflumannvirkja í Búrfellsstöð

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica