Landsvirkjun hefur opið umhverfis landið
Landsvirkjun býður alla velkomna í stöðvar sínar í sumar. Undanfarin sumur hafa þúsundir ferðamanna kynnt sér orkuvinnslu úr vatnsafli og jarðvarma í stöðvum Landsvirkjunar.
Samhliða orkufræðslu er boðið upp á áhugaverðar sýningar af ýmsum toga umhverfis landið. Meðal þeirra er ljósmyndasýningin Raunveruleikatékk sem er samstarfsverkefni með Listahátíð í Reykjavík og hönnunarsýningin Náttúran í hönnun, samstarfsverkefni með Hönnunarmiðstöð Íslands.
![]() |
| Frá sýningu Hallsteins Sigurðssonar í Laxárstöðvum |
Opið alla daga síðdegis í sumar. Aðgangur er ókeypis.
Verið velkomin á viðkomustaði okkar í sumar:
- Blanda í Húnavatnssýslu: Dimmir hratt á draugaslóð – málverkasýning Baska
- Búrfell í Þjórsárdal: Gengið að verki – ljósmyndasýning Jakobs Jakobssonar, Andlit Þjórsdæla – líf í Þjórsárdal í 1100 ár. Þjóðveldisbærinn
- Krafla í Mývatnssveit: Kröflueldar – kvikmynd og fræðsla um orku í iðrum jarðar
- Laxá í Aðaldal: Hvað er með Ásum – höggmyndir og goðafræði Hallsteins Sigurðssonar
- Ljósifoss við Sog: Náttúran í hönnun – samstarfsverkefni með Hönnunarmiðstöð Íslands. Opnar 19. júní.
- Végarður í Fljótsdal: Framkvæmdir við Kárahnjúka í máli og myndum og ferðir inn í Fljótsdalsstöð
Í öllum stöðvum er sýningin Raunveruleikatékk – útiljósmyndasýning í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík.

