Sýningin Náttúran í hönnun opnuð í Ljósafossstöð
Á sýningunni Náttúran í hönnun verður boðið í ferðalag um hlutbundna náttúru íslenskra hönnuða og skyggnst inn í hugarheim þeirra, meðal annars með áhugaverðum viðtölum.
Sýningin er samstarfsverkefni Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Landsvirkjunar.
Rúmlega 30 hönnuðir sýna verk sín. Á meðal þeirra eru: Árni Grétarsson, Brynhildur Pálsdóttir og Guðfinna Mjöll, Dagný Bjarnadóttir, Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, Hanna Jónsdóttir, Jón Björnsson, Katrín Ólína, Jóhanna Methúsalemsdóttir, Hildur Yeoman, Snæfríð Þorsteins & Hildigunnur Gunnarsdóttir, Vík Prjónsdóttir og Tinna Gunnarsdóttir.
Sýningarstjóri er Hlín Helga Guðlaugsdóttir.
Ljósafossstöð er opin frá 13 til 17 virka daga í sumar og frá 13 til 18 um helgar. Síðasti sýningardagur er 28. ágúst.
