Orkukostnaður og losun i-MiEW rafmagnsbíls til athugunar hjá Landsvirkjun í sumar
Rafmagnsbíllinn prófaður í Sogsstöðvum og á Þjórsársvæðinu. Liður í þróunarvinnu Landsvirkjunar að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur og Iðnaðarráðuneytið fengu á vormánuðum afhenta tvo fjögurra manna i-MiEV (Mitsubishi innovative Electric Vehicle) rafbíla frá Mitsubishi. Ráðuneytið hefur afnot af öðrum bílnum næstu tvö árin. Orkuveita Reykjavíkur og Landsvirkjun munu skipta notkun á hinum bílunum á milli fyrirtækjanna og gera ýmsar rannsóknir hvað varðar notkun rafmagnsbíla við starfsemi sína.
Íslensk stjórnvöld, Mitsubishi og HEKLA undirrituðu viljayfirlýsingu árið 2008 um sérstakt tilraunaverkefni á Íslandi varðandi rafbíla. Erlend fyrirtæki sjá tækifæri í samstarfi við íslenska aðila vegna reynslu þeirra á þessu sviði og vegna þess að hér á landi eru endurnýjanlegar auðlindir nýttar við framleiðslu á raforku.
Landsvirkjun hefur nú fengið bílinn til umráða og mánudaginn 21. júní var honum ekið austur að Sogsstöðvum þar sem hann verður til reynslu í eina viku. Þá fer bíllinn austur á Þjórsársvæði og verður þar í tvær vikur. Í þessar þrjár vikur verður prófað hvernig rafmagnsbíllinn nýtist á starfsstöðvunum. Til dæmis til hvaða verkefna hann hentar best. Starfsmenn munu skrá niður drægni og notkunina á þessum tíma og nýta svo þær upplýsingar til frekari úrvinnslu. Landsvirkjun fær bílinn svo aftur til umráða síðar í sumar til frekari rannsókna.
i-MiEV er losunarfrítt ökutæki, það er að segja bíllinn losar ekkert CO2 í andrúmsloftið. Á heimasíðu Mitsubishi er gefið upp að i-MiEV bíllinn losi um það bil 30% af CO2 losun bensínbíls. Þá er tekið með í reikninginn CO2 losun vegna framleiðslu rafmagnsins sem bíllinn notar, en þarna er reiknað út frá erlendum raforkumörkuðum og eitt af því sem rannsakað verður er losunin miðað við rafmagnsframleiðslu með endurnýjanlegum orkugjöfum.
Það tekur um það bil 6 klukkutíma að fullhlaða bílinn. Áætlaður orkukostnaður er um 210 kr/ 100 km, en nákvæmur orkukostnaður og drægni bílsins er meðal annars það sem rannskað verður með notkun bílsins úti á stöðvum.
Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar er mjög ánægður með þessa tilraun og segir að þetta sé góð viðbót við þá þrjá vetnisbíla sem Landsvirkjun er með til afnota í samstarfi við Íslenska NýOrku. Eitt af markmiðum Landsvirkjunar sé að verða leiðandi í nýtingu margskonar endurnýjanlegra orkugjafa, og þessi tilraun sé liður í því.
Annað markmið Landsvirkjunar er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og er þetta verkefni liður í þeirri þróunarvinnu. Fyrirtækið gerir sér far um að taka þátt í ýmsum nýsköpunarverkefnum til að uppfylla þessa stefnu.
i-Miew rafbíllinn frá Mitsubishi er til hægri á myndinni. Honum var ekið í Sogsstöðvar
í fylgd Ford vetnisbíls Landsvirkjunar. Ökumennirnir voru sumarstarfsmennirnir
Sigurður Óli Guðmundsson og Trausti Stefánsson

