Fréttasafn
  • Púki og lamb eftir Ragnheiði Ösp

Náttúran í hönnun opnaði í Ljósafossstöð við mikla ánægju gesta

22.6.2010

Sýningin Náttúran í hönnun opnaði í Ljósafossstöð í Soginu síðastliðinn laugardag 19.júní. Rúmlega 300 manns komu í Sogið fyrstu helgina sem opið var til að sjá íslenska hönnun

Sýningin er samstarfsverkefni Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Landsvirkjunar, og sýningarstjóri er Hlín Helga Guðlaugsdóttir. Á opnun sýningarinnar lýstu Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar og Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands, bæði ánægju með samstarfið. Halla sagði stuðning við þá grósku sem á sér stað í íslenskri hönnun mikilvægan og Hörður benti á jákvæð áhrif samstarfs ólíkra aðila.

Á sýningunni er teflt fram hönnuðum sem skoða náttúruna frá ólíku sjónarhorni en efnistökin eru jafn fjölbreytileg og náttúran sjálf. Spurningum um náttúruvernd, sjálfbærni, manngert umhverfi og fegurð er beint til áhorfenda.

Í umsögn sýningastjóra segir meðal annars að boðið sé í ferðalag um hlutgerða náttúru íslenskra hönnuða og skyggnst inn í hugarheim þeirra m.a. með áhugaverðum viðtölum við Hrafnkel Birgisson, Katrínu Ólínu, Sigríði Sigþórsdóttur og Steinunni Sigurðardóttur.

“Fjörulallar”, “Súkkulaðifjöll”, “Fíflar”, “Kría”, “Ugluspegill”, “Leirpottur” og “Bongóblíða” eru nöfn nokkurra verka á sýningunni en ásamt þeim bregður fyrir fjölmörgum náttúrufyrirbærum og minningum um horfna náttúru sem öðlast líf í hönnun sýnenda, sem eru rúmlega 30 talsins, meðal annarra: Brynhildur Pálsdóttir og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir, Dagný Bjarnadóttir, Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, Hanna Jónsdóttir, Hafsteinn Júlíusson, Jón Björnsson, Katrín Ólína, Jóhanna Methúsalemsdóttir, Hildur Yeoman, Snæfríð Þorsteins & Hildigunnur Gunnarsdóttir, Sruli Recht, Vík Prjónsdóttir og Tinna Gunnarsdóttir. 

  Frá opnun sýningarinnar Náttúran í hönnun 

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, ávarpar gesti

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica