Reitun ehf. gefur út lánshæfismat fyrir Landsvirkjun
Íslenska lánshæfismatsfyrirtækið Reitun hefur í fyrsta skipti birt lánshæfiseinkunn fyrir Landsvirkjun.
Einkunnin er A og eru horfurnar stöðugar. Reitun er nýstofnað fyrirtæki og er dótturfélag IFS ráðgjafar ehf.
Reitun er ætlað að meta íslensk fyrirtæki sem gefa út skuldabréf á innlendum markaði. Einkunn Landsvirkjunar er sú sama og íslenska ríkisins og segir m.a. í niðurstöðum matsins, "að miðað við núverandi aðstæður, er Landsvirkjun ekki síðri lántakandi en íslenska ríkið".
Niðurstaðan endurspeglar traustan rekstur og sterka fjárhagsstöðu Landsvirkjunar sem hefur sjaldan eða aldrei verið betri.
Að mati Landsvirkjunar hefur einkunnin ekki bein áhrif á útgefna skuldabréfaflokka fyrirtækisins hér á landi.
Hún mun hins vegar tryggja enn frekar að Landsvirkjun fái áfram hagstæð kjör á innlendum skuldabréfamarkaði.
Reitun - Lánshæfismat Landsvirkjunar 25. júní 2010
Fréttatilkynning Reitunar ehf.
