Fréttasafn

Hækkun á raforkuverði í heildsölu

2.7.2010

Þann 1. júlí hækkaði Landsvirkjun verð á raforku í heildsölu um 8,3%.

Hækkunin tekur mið af heildsölusamningum og grunnorkusamningum Landsvirkjunar til sjö og tólf ára. Í þeim er kveðið á um að samningsbundið verð geti tekið breytingum til samræmis við vísitölu neysluverðs einu sinni á ári.

Hækkunin nær ekki til annarra samninga í heildsölu Landsvirkjunar.

Verðhækkunin er í samræmi við hækkun vísitölu neysluverðs frá apríl 2009 til og með apríl 2010.

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica