Fréttasafn

Hefur þú áhuga á að taka þátt í rannsókn á rafmagnsbílum?

15.7.2010

Þátttakendur skrá notkun sína á bílunum og taka þátt í rannsókn á notagildi þeirra.

Íslensk nýorka vinnur að rannsóknum á virkni rafmagnsbíla á Íslandi og leitar af því tilefni að fjölskyldum sem vilja taka bíla knúna rafmagni og vetni á leigu. Fjölskyldurnar skrá notkun sína á bílunum og taka þátt í rannsókn á notagildi þeirra.

Landsvirkjun hefur að undanförnu tekið þátt í hluta rannsóknarinnar með Íslenskri nýorku og prófað rafmagnsbíl af gerðinni Mitshubishi i MiEV. Bíllinn hefur verið notaður á stöðvum Landsvirkjunar í Soginu og Þjórsársvæðinu. Einnig hafa starfsmenn Landsvirkjunar í Reykjavík prófað bílinn og lýst ánægju sinni með hann.

Leitað er að tveggja til fjögurra manna fjölskyldum sem hafa áhuga á umhverfismálum. Ökumenn verða að hafa náð 22 ára aldri. Æskilegt er að hafa bílskúr til umráða og er aðgangur að rafmagnsinnstungu nauðsynlegur.

Notendur greiða sjálfir fyrir rafmagnshleðslu og vetnisáfyllingu og er leigan 25.000 kr. á mánuði (trygging innifalin). Óskað er eftir umsóknum frá áhugasömum fjölskyldum með lýsingu á fjölskyldunni. Í umsókninni þarf einnig að koma fram svar við spurningunni: „Hvers vegna ættum einmitt við að fá leigðan rafbíl?“

Umsóknin sendist til glk@newenergy.is fyrir 29. júlí næstkomandi.

Rannsóknarverkefnið hefst í ágúst 2010 og lýkur í maí 2011. Þátttakendur verða að svara spurningakönnunum og halda skráningu yfir akstur bílanna á leigutímanum.

Verkefnið styrkja Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur, NORA, Orkusetur, HR og fleiri.

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica