Fréttasafn

Landsvirkjun styrkir Ómar Ragnarsson um 2 milljónir króna

20.7.2010

Landsvirkjun hefur ákveðið að taka þátt í söfnun til styrktar Ómari Ragnarssyni og veita honum styrk að andvirði 2 milljóna króna. Markmið framlags Landsvirkjunar er að styðja við upplýsta og vandaða umræðu um umhverfismál  og nýtingu náttúruauðlinda, þar sem ólíkar skoðanir koma fram.

Ómar Ragnarsson er einn af þeim sem hefur lagt mikið af mörkum til umræðu um umhverfismál og nýtingu náttúrunnar á undanförnum árum.  Hann hefur í fjöldamörg ár kynnt almenningi náttúruundur og fyrirbrigði, vakið athygli á umhverfisvandamálum og spurt spurninga um nýtingu og vernd íslenskrar náttúru. Þessar spurningar eru sambærilegar þeim sem Landsvirkjun stendur frammi fyrir í sínum rekstri og framtíðarsýn. 

 „Landsvirkjun vill leggja sitt af mörkum til þess að stuðla að aukinni umræðu á þessum vettvangi. Með því að dýpka umræðuna má nálgast vandaða og upplýsta niðurstöðu um nýtingu náttúruauðlinda sem góð sátt á að geta ríkt um í samfélaginu. Framlag Ómars til umræðunnar hefur verið mikilvægt og við styðjum hann til að halda áfram á þessari braut“, segir Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar.

Senda grein


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica