Fréttasafn
Vinnubúðir við Hálslón og Ufsarstíflu til sölu
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í vinnubúðir sem staðsettar eru á virkjunarsvæði Kárahnjúka.
Um er að ræða fjórar sölueiningar:
- 111 m2 svefnhúsalengja sem samanstendur af fimm húseiningum, í hverri einingu eru tvö svefnherbergi og með gang á milli og einni húseiningu með snyrtingu í báðum endum og gang á milli. Húsalengjan er staðsett á Laugarási við Hálslón og verður seld í einu lagi.
- 37 m2 tómstundahús sem saman stendur af tveimur húseiningum. Salerni er í annarri húseiningunni. Húsið er staðsett á Laugarási við Hálslón og verður seld í einu lagi.
- 93 m2 húsalengja með forstofu,setustofu og snyrtingu alls fimm húseiningar. Húsalengjan er staðsett við Ufsarstíflu og verður seld í einu lagi
- 93 m2 skrifstofuhúsalengja sem samanstendur af skrifstofuherbergjum, snyrtingu, inngangi og fl. Húsalengjan er staðsett við Ufsarstíflu og verður seld í einu lagi.
Tilboðsfrestur rann út 5. ágúst 2010.
