Fréttasafn

Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri, skiptir um starf

6.8.2010

Eru Stefáni þökkuð farsæl störf í þágu Landsvirkjunar og honum óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Stefán Pétursson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Arion banka. Hann mun taka við nýja starfinu 20. ágúst nk. og mun láta af störfum sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar á sama tíma.

„Stefán hefur starfað hjá Landsvirkjun í rúmlega 18 ár, fyrst sem yfirmaður lánamála, síðan sem deildarstjóri fjármáladeildar og loks sem framkvæmdastjóri fjármálsviðs frá árinu 2002. Þessi tími hefur verið mikið uppbyggingartímabil í sögu Landsvirkjunar, framleiðslugeta hefur þrefaldast og hefur Stefán gegnt mikilvægu hlutverki við stjórnun og stefnumörkun fyrirtækisins. Eru Stefáni þökkuð farsæl störf í þágu Landsvirkjunar og honum óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi."

Hörður Arnarson, forstjóri

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica