Landsvirkjun Power vinnur útboð UNDP um byggingu smávirkjana í Georgíu
Landsvirkjun Power sér um ráðgjöf við endurbyggingu lítilla virkjana og frumhönnunarskýrslu fjögurra nýrra virkjana.
Landsvirkjun Power, dótturfyrirtæki Landsvirkjunar, undirritaði þann 3. ágúst síðastliðinn samning við Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (United Nations Development Programme, UNDP) um ráðgjöf við endurbyggingu lítilla virkjana í Georgíu. Um er að ræða þrjár virkjanir að stærð 2-6,5 MW. Í verkinu felst að veita framkvæmdaaðila ráðgjöf við verkhönnun, hönnun, teikningar, eftirlit með framkvæmdum og fleira. Enn fremur mun Landsvirkjun Power gera frumhönnunarskýrslur um fjórar aðrar virkjanir í Georgíu.
Verkefnið var boðið út í janúar síðastliðinn og bauð Landsvirkjun Power í verkið í samstarfi við verkfræðistofuna Verkís og georgískt verkfræðifyrirtæki. Þessir samstarfsaðilar voru metnir hæfastir til verksins af þeim sem buðu. Heildarfjárhæð samningsins er tæplega ein milljón USD.
Landsvirkjun Power mun stýra verkefninu og annast alla skýrslugerð til UNDP, georgískir samstarfsaðilar munu annast stærstan hluta hönnunarvinnu svo og eftirlit á verkstað og Verkís mun yfirfara og rýna hönnun og teikningar. Verkið hófst nú í ágúst og á að ljúka fyrir árslok 2011.
Georgía liggur við austurenda Svartahafsins og búa þar um 5,5 milljónir manna. Landið er tæpir 70.000 km2. Það öðlaðist aftur sjálfstæði árið 1991 en var frá 1921 hluti af Sovétríkjunum. Orkuframleiðsla í landinu er um 8000 GWh/a, þar af um 6000 GWh/a með vatnsafli. Tæpur helmingur orkuframleiðslunnar kemur frá Enguri vatnsorkuverinu í vesturhluta landsins en þar er hæsta steypta bogastífla heims, 272 m. Enguri virkjunin er samtals 1320 MW en önnur stór vatnsorkuver eru Khrami 220 MW, Vardnili 220 MW og Tskhinvali 130 MW. Þessar virkjanir voru allar byggðar á Sovéttímanum.
Í Georgíu er töluverður jarðhiti en hann er fyrst og fremst nýttur í gróðurhús og til útvegunar á heitu neysluvatni fyrir um 3000 heimili í Tbilisi.
