Tilboð opnuð í byggingarhluta Búðarhálsvirkjunar BUD-01
Tilboð verða opnuð kl. 14:00 í dag í byggingarhluta Búðarhálsvirkjunar BUD-01, í húsakynnum Landsvirkjunar Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík.
Opnun tilboða er öllum opin, en þar eru lesin upp þau tilboð sem berast í verkið auk kostnaðaráætlunar.
Í útboðsverkinu felst byggingarvinna við Búðarhálsvirkjun og er verkinu skipt í þrjá verkhluta:
- LOT-11, Sporðöldustífla, jarðvegsstífla í tveimur hlutum, alls tæplega 1300 m löng og 25 m há.
- LOT-14, aðrennslisgöng, alls 4 km að lengd.
- LOT-15, stöðvarhús, inntaksmannvirki og frárennslisskurður.
Áætlað er að verkið verði unnið á árunum 2010 - 2013 og að virkjunin verði komin í rekstur fyrir árslok 2013. Gert er ráð fyrir að heildarfjöldi ársverka sem skapist á Íslandi vegna byggingar Búðarhálsvirkjunar verði á milli 600 til 700 yfir allan framkvæmdatímann. Þegar flest verður á vinnustað verða þar um 300 manns.
Verkið er boðið út á Evrópska efnahagssvæðinu eins og skylt er að gera um verk af þeirri stærðargráðu sem hér um ræðir.
Að lokinni opnun tilboða fara Landsvirkjun og ráðgjafar yfir þau tilboð sem borist hafa. Að því búnu taka við svokallaðar skýringarviðræður við lægstbjóðanda/bjóðendur um einstök atriði tilboða og að þeim loknum er gengið til samninga við lægstbjóðanda/bjóðendur. Gert er ráð fyrir að liðið geti um tíu vikur frá opnun útboða þar til endanlegur verksamningur á milli Landsvirkjunar og verktaka liggur fyrir. Áskilið er í útboðsgögnum að tilboð sem berast gildi í 126 daga frá opnun tilboða.
Spurningar og svör um Búðarhálsvirkjun og útboð vegna hennar
Nánari upplýsingar um framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun >>
