Fréttasafn

Aurskolun úr Ufsarlóni stendur yfir

30.8.2010

Aurskolun hófst á föstudag og stendur fram á miðvikudag.

Ufsarlón er eitt af lónunum sem mynda svokallaða Hraunaveitu Fljótsdalsstöðvar, en Hraunaveita samanstendur af Grjótárlóni, Kelduárlóni og Ufsarlóni. Megintilgangur Ufsarlóns er að jafna dagsveiflur í rennsli Jökulsár í Fljótsdal og taka við mesta aurburðinum.

Aurskolun úr Ufsarlóni hófst föstudaginn 27. ágúst lýkur miðvikudaginn 1. september. Þegar skolun úr Ufsarlóni er gerð, er leitast við að rennsli árinnar verði aldrei meira en 100 m3/s meðan mikill aur er í vatninu og að hámarki verði rennslið 150 m3/s.

Meðan á þessum aðgerðum stendur er rennsli árinnar því sveiflukennt og mikill aurburður getur verið tímabundið. Í kjölfar aurskolunar verður síðan farvegur Jökulár í Fljótsdal skolaður með rennsli sem er a.m.k. jafnt því hámarksrennsli sem notað var við útskolun aursins. Reiknað er með að útskolun standi yfir í a.m.k. 4 klst.

Gerð verður mæling á botninum og reynt að meta magn aurs sem að sest fyrir. Á meðan á útskolun stendur geta verið meiri rennslisbreytingar í farvegi árinnar en venjulega. Íbúar meðfram ánni hafa verið upplýstir um skolunina.

Stíflumannvirki Ufsarstíflu

Stíflumannvirki Ufsarstíflu

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica