Fréttasafn

Handbært fé frá rekstri eykst

30.8.2010

Sex mánaða uppgjör Landsvirkjunar birt í dag.

Árshlutareikningur Landsvirkjunar var í dag, 30. ágúst 2010, samþykktur á fundi stjórnar. Reikningurinn er samstæðureikningur sem tekur til Landsvirkjunar og dótturfélaga. Helstu atriði árshlutareiknings janúar til júní 2010 eru þessi:

  • Handbært fé frá rekstri nam 110 milljónum USD eða um 13,3 milljörðum króna á núverandi gengi.
  • Hagnaður tímabilsins nam tæpum 16 milljónum USD sem svarar til 1,9 milljarða króna á núverandi gengi.
  • EBITDA nam 143,8 milljónum USD að teknu tilliti til áhrifa innleystra áhættuvarna tengdum álverði. EBITDA hlutfall er 80% af veltu.
  • Mat á virði innbyggðra afleiða í tengslum við orkusölusamninga fyrirtækisins lækkaði um 183,2 milljónir USD á tímabilinu en álverð var fremur lágt í lok júní.
  • Sem fyrr er aðhalds gætt í rekstri og fjárfestingum og áhersla lögð á lausafjárstýringu.
    • Fjárfestingar voru um 25 milljónir USD á tímabilinu samanborið við 60 milljónir USD á sama tímabili árið 2009.
    • Afborganir lána voru 98 milljónir USD umfram nýjar lántökur.
    • Handbært fé í lok júní nam 179 milljónum USD en að auki hefur fyrirtækið aðgang að samningsbundnu veltiláni og er óádreginn hluti þess 282 milljónir USD. Laust fé er því alls um 461 milljón USD eða sem nemur um 55 milljörðum króna. Laust fé ásamt fé frá rekstri dugar til að mæta öllum núverandi skuldbindingum fyrirtækisins út árið 2012.
    • Helstu kennitölur sýna áframhaldandi jákvæða þróun í rekstri fyrirtækisins.
  • Heildareignir Landsvirkjunar nema 4,6 milljörðum USD eða um 552 milljörðum króna á núverandi gengi. Nettó vaxtaberandi skuldir nema 2,6 milljörðum USD og hafa lækkað um 263 milljónir USD frá áramótum.
  • Eigið fé Landsvirkjunar nam 1,6 milljörðum USD eða sem svarar til um 190 milljarða króna á núverandi gengi. Eiginfjárhlutfall var 34,5%.

Árshlutareikningur Landsvirkjunar er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS) og er hann í Bandaríkjadölum sem er starfrækslugjaldmiðill móðurfélagsins. Samkvæmt IFRS eru innleystar áhættuvarnir vegna álverðstengingar í orkusölusamningum færðar á meðal fjármunatekna og fjármagnsgjalda. Stjórnendur Landsvirkjunar telja gefa gleggri mynd af rekstri fyrirtækisins að færa innleystar álvarnir með tekjum fyrirtækisins og birta einnig rekstrarreikning með þeim hætti í sérstöku yfirliti sem er fremst í árshlutareikningnum. Breytingin hefur ekki áhrif á afkomu, efnahag eða sjóðstreymi, en hún hefur áhrif á einstaka liði innan rekstrarreikningsins.

Tekjur samstæðunnar námu 180 milljónum USD á tímabilinu en voru 179 milljónir USD á sama tímabili árið áður að teknu tilliti til áhættuvarna og eru því svipaðar á milli tímabila. Á tímabilinu janúar til júní 2010 gjaldfærði fyrirtækið 4,8 milljónir USD vegna samninga við erlendar fjármálastofnanir vegna álvarna en á sama tímabili 2009 tekjufærði fyrirtækið 40 milljónir USD vegna áhættuvarnarsamninga. Innleystar áhættuvarnir eru færðar meðal fjármunatekna og fjármagnsgjalda í árshlutareikningnum. Þar eru einnig færð vaxtagjöld sem lækkuðu úr 45,9 milljónum USD á fyrstu 6 mánuðum ársins 2009 í 39,4 milljónir USD á sama tímabili í ár, einkum vegna lækkunar millibankavaxta í Bandaríkjunum og Evrópu. Rekstrarkostnaður án afskrifta og virðisrýrnunar nam 36 milljónum USD á tímabilinu en var 34,9 milljónir USD á sama tímabili árið áður. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur námu 70 milljónum USD á tímabilinu án áhættuvarna en voru 27,9 milljónir USD á sama tímabili árið áður sem skýrist aðallega af lækkun á gangvirði innbyggðra afleiða í orkusölusamningum sem tengdir eru álverði og jákvæðum gjaldeyrismun. Gangvirðisbreytingar og gengishagnaður eru að mestu leyti óinnleyst og verður að hafa það í huga við mat á afkomu fyrirtækisins. Meðalnafnvextir langtímalána voru um 2,2% á tímabilinu en þeir voru um 2,5% árið áður.

Horfur á árinu eru góðar. Álverð er viðunandi um þessar mundir þó óvissa sé um þróun næstu missera. Þá er vaxtastig á helstu mörkuðum lágt sem nýtist Landsvirkjun vel þar sem mikill meirihluti lána ber breytilega vexti. Því standa vonir til að sjóðsmyndun verði góð um sinn. Afkoma fyrirtækisins mun sem fyrr ráðast að miklu leyti af gangvirðisbreytingum á innbyggðum afleiðum og gengisþróun. Fyrirtækið hefur aðgang að lausafé og lánum sem ásamt fé frá rekstri mun tryggja að fyrirtækið getur mætt núverandi skuldbindingum sínum út árið 2012. Þrátt fyrir góða stöðu er stöðugt unnið að frekari endurfjármögnun og markmiðið er að ljúka langtímaendurfjármögnun þannig að fyrirtækið þurfi ekki á lánsfjármagni að halda eftir 2012.

Landsvirkjun mun ekki ráðast í nýjar framkvæmdir nema að fjármögnun þeirra sé tryggð. Fyrirspurnir og heimsóknir frá hugsanlegum orkukaupendum sýna að eftirspurn eftir raforku frá Landsvirkjun er mikil og vonast fyrirtækið eftir því að það skili sér í hærra orkuverði í nýjum sölusamningum.

Árshlutareikningur Landsvirkjunar janúar til júní 2010

Helstu stærðir árshlutareiknings í þúsundum Bandaríkjadala:


Samstæða - framsetning stjórnenda
Innleystar áhættuvarnir færðar meðal rekstrartekna

Jan-júní Jan-júní Jan-júní Jan-júní Jan-júní

2010 2009 2008 2007 2006
Rekstrartekjur 184.585 139.009 239.623 173.427 161.502
(Gjaldfærðar) tekjufærðar áhættuvarnir (4.812) 40.074 (35.721) (34.027) (24.501)
Rekstrartekjur samtals 179.773 179.083 203.902 139.400 137.002
Rekstrar- og viðhaldskostnaður (35.978) (34.849) (50.250) (48.079) (48.225)
EBITDA 143.795 144.234 153.652 91.321 88.777
Afskriftir og virðisrýrnun (52.634) (54.801) (51.333) (37.142) (36.251)
Rekstrarhagnaður (EBIT) 91.161 89.433 102.319 54.179 52.526
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (69.994) (27.901) 32.107 365.436 (197.124)
Tekjuskattur (5.479) (14.274) (50.977) (111.032) 186.028
Hagnaður 15.688 47.258 83.449 308.584 41.430



Samstæða - skv. alþjóðlegum reikningsskilastöðlum

Jan-júní Jan-júní Jan-júní Jan-júní Jan-júní

2010 2009 2008 2007 2006
Rekstrartekjur 184.585 139.009 239.623 173.427 161.502
Rekstrarkostnaður:




Rekstrar- og viðhaldskostnaður 35.978 34.849 50.250 48.079 48.225
Afskriftir og virðisrýrnun 52.634 54.801 51.333 37.142 36.251
Rekstrarkostnaður alls 88.612 89.650 101.583 85.221 84.476
Rekstrarhagnaður 95.973 49.359 138.040 88.206 77.026
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (74.806) 12.173 (3.614) 331.409 (221.624)
Hagnaður (tap) fyrir skatta 21.167 61.532 134.426 419.616 (144.598)
Tekjuskattur (5.479) (14.274) (50.977) (111.032) 186.028
Hagnaður 15.688 47.258 83.449 308.584 41.430






Handbært fé frá rekstri 109.984 103.644 76.356 64.932 90.127
Fjárfestingar (24.664) (59.640) (213.623) (191.053) (306.317)







30.6.2010 31.12.2009 31.12.2008 31.12.2007 31.12.2006
Eignir samtals 4.584.038 4.803.522 4.619.220 5.142.303 4.279.794
Eigið fé 1.579.686 1.564.487 1.376.792 1.600.145 1.143.272
Skuldir 3.004.352 3.239.035 3.242.428 3.542.158 3.136.522






Eiginfjárhlutfall 34,5% 32,6% 29,8% 31,1% 26,7%
Arðsemi eigin fjár 2,0% 14,0% -21,5% 40,2% 18,3%
Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica