Evrópusambandið vill auka vægi endurnýjanlegra orkugjafa
Árið 2020 á hlutur endurnýjanlegra orkugjafa að nema 20% af allri orkunotkun innan ESB.
![]() |
|---|
|
Hlutur vatnsafls í raforkuvinnslu
Landsvirkjunar nemur um 96%.
|
Á undanförnum árum hafa ýmsar breytingar átt sér stað á alþjóðlegum raforkumarkaði. Á meginlandi Evrópu hefur raforkuverð hækkað. Raforkukerfi álfunnar er að mestu leyti orðið samtengt og hefur orðið til virkur raforkumarkaður þar sem fram fara kaup og sala raforku.
Vægi umhverfisvænnar orku í Evrópu hefur einnig aukist. Markmið Evrópusambandsins er að fyrir árið 2020 skuli 20% allrar orkunotkunar koma frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Markmiðin segja einnig til um að draga skuli úr losun gróðurhúsalofttegunda um 20% og draga úr orkunotkun um 20%. Til þess að ná þessum markmiðum verður að tvöfalda orkunotkun úr endurnýjanlegum orkugjöfum á svæði Evrópusambandsins miðað við tölur frá árinu 2006.
Til að stuðla að auknum hlut umhverfisvænnar orku hefur Evrópusambandið gefið út reglugerð er varðar svokölluð „græn vottorð“. Reglugerðin segir til um að grænum vottorðum sé úthlutað til þeirra raforkuframleiðenda sem nýta endurnýjanlega orkugjafa við framleiðslu sína. Þessir framleiðendur geta síðan selt vottorðin áfram. Aðrir raforkuframleiðendur sem vilja auka vægi umhverfisvænna orkugjafa í sínum bókum geta keypt græn vottorð og nýtt til að auka hlutfall grænnar framleiðslu út á við. Fyrirhugaðir eru einnig kolefnisskattar og verða hæstu skattarnir lagðir á raforkuframleiðslu með kolum og gasi, lítillega á framleiðslu með jarðvarma en engir á raforkuvinnslu með vatnsafli.
Landsvirkjun fylgist vel með þessari þróun, sem getur skapað tækifæri og skerpt samkeppnisstöðu hennar gagnvart evrópskum raforkuframleiðendum.

