Fréttasafn
Framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun settar af stað af krafti
Landsvirkjun og Ístak hafa undirritað samkomulag sem felur í sér að vinna við Búðarhálsvirkjun er sett í fullan gang, með fyrirvara um fjármögnun.
Með samkomulaginu við Ístak er Landsvirkjun að tryggja að verkefnið haldi tímaáætlun, en gert er ráð fyrir afhendingu orku úr Búðarhálsvirkjun í árslok 2013.
Fjármögnun byggingar Búðarhálsvirkjunarinnar er ekki lokið en fyrirvari um fjármögnun þýðir að gangi fjármögnun virkjunarinnar ekki eftir er Landsvirkjun heimilt að stöðva framkvæmdir.
