Arður í orku framtíðar
Ársfundur Landsvirkjunar 2011 verður haldinn 15. apríl á Grand Hótel Reykjavík kl. 14-16.
Eftirspurn eftir raforku úr endurnýjanlegum orkugjöfum hefur aukist verulega. Landsvirkjun hefur staðið fyrir umfangsmikilli greiningarvinnu á þýðingu þessara breytinga fyrir fyrirtækið og eigendur þess.
Niðurstöðurnar sýna áhugaverð tækifæri sem meðal annars fela í sér uppbyggingu fjölbreytts iðnaðar, sölu á grænum þætti raforkunnar og tengsl við nýja markaði. Ef rétt er unnið úr tækifærunum getur orkugeirinn á Íslandi haft sambærilega þýðingu og olíuiðnaðurinn í Noregi.
Landsvirkjun býður til kynningar og opinnar umræðu um þau tækifæri sem fyrirtækið stendur frammi fyrir, auk kynningar á árangri ársins 2010.
Allir velkomnir.
Dagskrá
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra
opnar fundinn.
Ávarp stjórnarformanns Landsvirkjunar
Hörður Arnarson, forstjóri
Ísland árið 2025: Fjölbreyttur iðnaður, sæstrengur og grænar tekjur
Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Ársreikningur og lykiltölur úr rekstri Landsvirkjunar 2010.
Fundarstjóri
Ragna Árnadóttir, Skrifstofustjóri

