Ný og endurbætt heimasíða Landsvirkjunar opnuð
Landsvirkjun naut aðstoðar nemenda Hallormsstaðaskóla þegar nýir og endurhannaðir vefir Landsvirkjunar og Kárahnjúkavirkjunar voru opnaðir.
Nemendur úr Hallormsstaðaskóla mættu allir með tölu ásamt kennurum sínum þegar nýr vefur Landsvirkjunar var opnaður á Skriðuklaustri í Fljótsdal.
Krakkarnir voru hinir líflegustu og settu mikinn svip á þetta forna fræðasetur. Eins og komið hefur fram hér á vefnum tóku nemendurnir formlega í notkun fyrstu vatnsvélina í Fljótsdal á meðan á heimsókninni stóð. Að því loknu fengu tveir útvaldir nemendur að opna nýja heimasíðu Landsvirkjunar og Kárahnjúkavirkjunar. Er skemmst frá því að segja að opnunin tókst prýðilega og ríkti mikill fögnuður hjá nemendum þegar nýju síðurnar birtust.
Báðir vefirnir eru unnir af hugbúnaðarfyrirtækinu Origo, sem sérhæfir sig í ýmsum veflausnum. Viðhalds- og vefumsjónarkerfið WebMaster er notað til þess að setja inn efni og breyta því sem fyrir er á vefnum.

Þau Dagrún og Ágúst, nemendur í Hallormsstaðaskóla
aðstoðuðu við opnunina á vefjunum.
Að þessu loknu fengu krakkarnir fræðslu um raforkumál með ýmsum hætti. Hópnum var skipt í tvennt og fengu eldri krakkarnir meðal annars það verkefni að stýra heilu raforkukerfi. Þau yngri leystu einnig ýmsar þrautir.

