Fréttasafn

Landsvirkjun og Sundsamband Íslands undirrita samstarfssamning

13.1.2012

Landsvirkjun og Sundsambands Ísland undirrituðu þann 6. janúar síðastliðinn samning  um að Landsvirkjun verði einn af aðalsamstarfsaðilum Sundsambandsins á komandi ári.  

Báðir aðilar lýstu yfir ánægju með samstarfið við þetta tækifæri og Hörður sagði stuðning sem þennan vera Sundsambandinu mikilvægan til að halda úti öflugu starfi, ekki síst í ár þegar ólympíuleikar eru handan við hornið.

Samstarfssamningurinn felur í sér að Landsvirkjun verður einn af bakhjörlum SSÍ sundárið 2012 og mun stuðningurinn  fyrst og fremst nýtast til undirbúnings sundfólks fyrir Ólympíuleikana sem hefjast í London í ágúst 2012.  Sá undirbúningur er nú í fullum gangi og er sundfólkið á ferð og flugi í æfingabúðum auk þess að taka þátt í mótum sem gefa möguleika á að ná lágmörkum inn á leikana.

Í ólympíuhóp SSÍ eru nú alls þrettán einstaklingar á aldrinum 16 til 29 ára en það verður ekki endanlega ljóst fyrr en 20. júní hverjir öðlast keppnisrétt á leikunum samkvæmt reglum Alþjóðasundsambandsins.

 

SSI_undirskrift

Á myndinni eru þau Ragna Sara Jónsdóttir yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar og Hörður J. Oddfríðarson formaður SSÍ við undirritun samningsins.

 

 

 

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica