Fréttasafn

Tillögur sveitarstjórnar Flóahrepps vegna aðalskipulags

15.6.2007

Í framhaldi af ákvörðun Flóahrepps um að ekki verði gert ráð fyrir fyrirhugaðri Urriðafossvirkjun í drögum að aðalskipulagi hreppsins hittust fulltrúar Flóahrepps og Landsvirkjunar á fundi í morgun.

Að loknum þeim fundi var gefin út svohljóðandi fréttatilkynning.

Fulltrúar sveitarstjórnar Flóahrepps og Landsvirkjunar hittust á fundi í morgun og ræddu skipulagsmál með tilliti til væntanlegrar kynningar á drögum að aðalskipulagi sveitarfélagsins fyrir íbúum þess.

Viðræðum milli aðila, sem í gangi hafa verið, verður haldið áfram á næstunni um áhrif Urriðafossvirkjunar í Flóahreppi og hvernig við þeim verður brugðist. Í því sambandi er m.a. rætt um samgöngur og ferðaþjónustu á svæðinu, vatnsvernd, lífríki Þjórsár, landnotkun í nágrenni virkjunarinnar og mögulegar mótvægisaðgerðir.

Sveitarstjórn mun halda íbúafund þann 25. júní n.k. þar sem tillögur að aðalskipulagi verða kynntar með og án Urriðafossvirkjunar. Í framhaldi af því er gert ráð fyrir formlegu auglýsingar- og kynningarferli í samræmi við skipulagslög.
 
Það er von viðræðuaðila að sameiginleg niðurstaða fáist sem fyrst um nauðsynlegar mótvægisaðgerðir og önnur samskipti aðila vegna fyrirhugaðrar Urriðafossvirkjunar.

Þingborg 15. júní 2007

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica