Landsvirkjun tekur upp Bandaríkjadollar sem starfrækslumynt
Landsvirkjun hefur ákveðið að taka upp Bandaríkjadollar sem starfrækslumynt frá og með næstu áramótum. Af því tilefni vill Landsvirkjun benda á eftirfarandi:
Landsvirkjun þarf lögum samkvæmt að taka upp alþjóðlega reikningsskilastaðla frá og með árinu 2007 vegna þess að skuldabréf fyrirtækisins eru skráð á markaði bæði hérlendis og í Luxemburg.
Ákvörðun um starfrækslugjaldmiðil er einn af grundvallarþáttum innleiðingar á reikningsskilastöðlunum. Ákvörðunin er ekki valkvæð heldur eru í staðlinum leiðbeiningar um hvað liggja skuli til grundvallar á vali starfrækslugjaldmiðilsins.
Árið 2008 verður fyrsta fulla starfsár Fjarðaáls á Reyðarfirði sem hefur þau áhrif að hlutur Bandaríkjadollars verður ráðandi í tekjusamsetningu fyrirtækisins. Hlutur Bandaríkjadollara í gjöldum fyrirtækisins er einnig verulegur. Því er sýnt að fyrirtækið verður frá og með næsta ári háðara Bandaríkjadollara en íslenskri krónu í rekstri sínum.
Ákvörðun um að taka upp Bandaríkjadollar sem starfrækslumynt snýst um bókhald og reikningsskil Landsvirkjunar. Fyrirtækið mun eftir sem áður sinna sínum viðskiptum á innlendum heildsölumarkaði í krónum eins og verið hefur.
Viðhengi
Starfrækslumynt Landsvirkjunar - Glærur Stefáns Péturssonar
Starfrækslumynt Landsvirkjunar - Glærur Reynis Gylfasonar
