Fréttasafn

Formleg gangsetning Kárahnjúkavirkjunar

30.11.2007

Kárahnjúkavirkjun verður formlega gangsett í dag kl. 13:30. Þar sem flugsamgöngur fóru úr skorðum í dag vegna veðurs fer gangsetningin samtímis fram í  stöðvarhvelfingu Fljótsdalsstöðvar og í Reykjavík.

Fljótsdalsstöð í september 2007Gagnvirk útsending verður á milli Reykjavíkur og Fljótsdalsstöðvar með fjarfundabúnaði. Í Reykjavík mun Páll Magnússon, formaður stjórnar Landsvirkjunar, bjóða gesti velkomna, iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson, ávarpar gesti og Guðmundur Pétursson, verkefnisstjóri, lýsir mannvirkjunum.

Við athöfnina sem verður á Hilton Hotel Nordica munu Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra og Árni Mathiesen, fjármálaráðherra ræsa vélar 5 og 6 í Fljótsdalsstöð.

Á meðal fjölmargra þátttakenda í Fljótsdalsstöð verða þau Georg Pálsson, stöðvarstjóri Fljótsdalsstöðvar og Gunnþórunn Ingólfsdóttir, oddviti Fljótsdalshrepps.

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica