Landsvirkjun fær tvær vetnisbifreiðar afhentar
Þann 28. nóvember var vetnisstöðin við Vesturlandsveg formlega opnuð aftur eftir breytingar að viðstöddum ráðherra iðnaðarmála. Er hún fyrsta vetnisstöð á byggðu bóli sem opin er almenningi.
Þessi áfangi markar jafnframt upphaf á nýju vistverkefni sem VistOrka og Íslensk NýOrka standa að og kallað er SMART-H2 (Sustainable Marine and Road Transport, Hydrogen in Iceland). Markmið SMART-H2 er að koma 25-40 vetnisbílum í umferð hérlendis fyrir árslok 2009.
Við enduropnun vetnisstöðvarinnar voru tíu vetnisbifreiðar afhentir nýjum eigendum. Bílarnir eru allir af gerðinni Toyota Prius en fyrir var á götunni einn efnarafalsbíll af gerðinni Mercedes Benz. Sá bíll er í sameiginlegri umsjá Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur. Toyota Prius bifreiðarnar voru smíðaðir af Toyota en var síðan breytt í vetnistvinnbíla af fyrirtækinu Quantum í Kaliforníu.

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, tekur breytta vetnisstöð formlega í
notkun með því að setja vetni á einn af tíu nýja venisbíla.

Bjarni Bjarnason, framkvæmdastjóri orkusviðs Landsvirkjunar og formaður stjórnar
Íslenskrar Nýorku, afhendir þeim Hallvarði Sigurjónssyni, og
Viðari Kjartanssyni bílana til umráða.
