Greint frá virkjunum í Neðri-Þjórsá í nýju fréttabréfi
Á næstu misserum mun Landsvirkjun gefa út fréttabréf þar sem sagt er frá framgangi verkefna sem tengjast virkjunum í Neðri-Þjórsá.
Landsvirkjun hefur um nokkurra ára skeið unnið að undirbúningi virkjana í Neðri-Þjórsá. Þar er fyrirhugað að reisa þrjár virkjanir til að nýta fallið í ánni. Efsta virkjunin er nefnd Hvammsvirkjun, síðan kemur Holtavirkjun og neðsta virkjunin er nefnd Urriðafossvirkjun.
Í nýja fréttabréfinu er m.a. greint frá mati á umhverfisáhrifum vegna virkjananna og gerð aðalskipulags viðkomandi sveitarfélaga. Þá er sagt frá undirbúningsrannsóknum og fjallað um vinnu við gerð samninga við landeigendur og Alcan.
Fréttabréfið er sent á öll heimili í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, Rangárþingi Ytra, Ásahreppi og Flóahreppi.
Viðhengi:
Frettabréf um virkjanir í Þjórsá
