Sýning á list Sigurjóns Ólafssonar í Búrfellsstöð
Í ár eru 100 ár liðin frá fæðingu Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara. Af því tilefni hafa Listasfan Sigurjón Ólafssonar og Landsvirkjun með sér samstarf um að minnast hans og listar hans með verðugum hætti.
Landsvirkjun styður afmælisdagskrá Listasafnsins sem lesa má nánar um á vef Listasafns Sigurjóns Ólafssonar en þar er um að ræða fjölbreytta viðburði heima og erlendis á komandi mánuðum.
Laugardaginn 14. júní klukkan 14 opnar sýning á list Sigurjóns í Búrfellsstöð í Þjórsárdal. Þar getur að líta valin verk Sigurjóns og fróðleik um vinnubrögð hans við gerð lágmyndarinnar sem prýðir framhlið Búrfellsstöðvar, en hún er stærsta lágmynd á Íslandi og hefur löngu skapað sér sess í hugum Íslendinga sem einkennismynd fyrir fyrstu stórvirkjun landsins.
Á sýningunni gefst kostur á að sjá stutta kvikmynd Ásgeirs Long um það hvernig Sigurjón skapaði hina risavöxnu lágmynd.
Sýningin verður síðdegis í allt sumar og er aðgangur ókeypis. Allir eru velkomnir við opnun sýningarinnar laugardaginn 14. júní.
