Styttist í að vatn renni á yfirfalli Hálslóns við Kárahnjúka
Í hlýindunum síðustu vikur hefur verið mikið innrennsli í Hálslón frá Brúarjökli. Undanfarna viku hefur innrennslið inn í lónið verið um það bil 33 milljón rúmmetrar á sólahring sem jafngildir að meðaltali innrennsli upp á rúma 380 rúmmetra á sekúndu. Þar af renna svo um 120 rúmmetrar á sekúndu til Fljótsdalsstöðvar til orkuframleiðslu.
Miðað við innrennslið undanfarna daga og veðurútlitið á næstunni má gera ráð fyrir að Hálslón nái yfirfallshæð sem er í 625 m yfir sjávarmáli á tímabilinu 12.-14. ágúst nk. Þá mun vatn byrja að renna um þar til gerða yfirfallsrennu við stífluna á vesturbakkanum og niður í gljúfrið neðan hennar og niður Jökuldal.
Vatnsrennsli í farvegi Jöklu neðan stíflunnar mun síðan aukast nokkuð hratt og gæti miðað við núgildandi veðurútlit orðið á bilinu 200 til 300 rúmmetra á sekúndu. Í miklum hlýindum gæti rennslið orðið miklu meira. Samkvæmt núgildandi spá mun vatn renna á yfirfalli fram í fyrstu viku október.
Ferðamenn sem leið eiga um svæðið eru sem fyrr beðnir um að gæta varúðar á vinnusvæðinu í grennd við stífluna sem og neðan hennar.
Þessi spá um vatnsrennsli á yfirfalli Hálslóns verður skoðuð nánar þegar nær dregur og íbúar við Jöklu verða þá látnir vita sérstaklega um væntanlegt aukið rennsli í ánni með um sólarhrings fyrirvara með símaskilaboðum frá 112.
