Fréttasafn
Landsvirkjun gerist bakhjarl Sesseljuhúss umhverfisseturs
Nýverið var undirritaður samningur milli Landsvirkjunar og Sesseljuhúss umhverfisseturs um að Landsvirkjun gerist bakhjarl Sesseljuhúss, sem einn af aðal samstarfs- og styrktaraðilum hússins.
Sesseljuhús umhverfissetur er fræðslusetur um sjálfbæra þróun og þar fer fram fjölbreytt starfsemi. Á vegum Landsvirkjunar fer fram fræðsla um raforkuvinnslu og umhverfismál og er markmiðið með samningnum að samnýta þekkingu beggja aðila við uppbyggingu á umhverfisfræðslu fyrir skólahópa og ferðamenn. Með þessum samningi styrkist starfsemi Sesseljuhúss enn frekar en bakhjarlar hússins nú þegar eru Umhverfisráðuneytið, Hitaveita Suðurnesja og Landsbankinn.

Á myndinni má sjá Þorstein Hilmarsson, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar og Bergþóru Hlíðkvist Skúladóttur, forstöðumann Sesseljuhúss við undirritun samningsins.
