Fréttasafn
KRÖFLUVIRKJUN II - Allt að 150 MWe jarðhitavirkjun í Skútustaðahreppi
Hafið er matsferli vegna fyrirhugaðrar Kröfluvirkjunar II, í Skútustaðahreppi í Þingeyjarsýslu. Landsvirkjun fyrirhugar að reisa þar allt að 150 MWe jarðhitavirkjun, til viðbótar við núverandi 60 MWe Kröflustöð I.
Landsvirkjun er framkvæmdaraðili verksins en mat á umhverfisáhrifum verður unnið af Mannvit hf. verkfræðistofu Tillaga að matsáætlun er nú til umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun og má nálgast tillöguna hér.
