Fréttasafn

Rannsóknaboranir við Kröflu í Skútustaðahreppi

7.11.2008

Landsvirkjun hefur lagt fram drög að tillögu að matsáætlun vegna rannsóknaborana í Kröflu.

Landsvirkjun áformar að bora allt að fjórar rannsóknaholur við Kröflu, í Skútustaðahreppi.

Í 6. gr. og 2. viðauka, tl. 2 c i, í lögum nr. 106/2000 m.s.b., um mat á umhverfisáhrifum, kemur fram að djúpborun og þar með talin borun rannsóknahola á háhitasvæðum, sé tilkynningarskyld framkvæmd. Í ljósi aðstæðna óskaði Landsvirkjun hins vegar eftir því að fara með fyrirhugaðar rannsóknaboranir beint í mat á umhverfisáhrifum skv. IV. kafla laganna og hefur Skipulagsstofnun fallist á þá málsmeðferð.

Landsvirkjun hefur dregið til baka tillögu að matsáætlun vegna Kröfluvirkjunar II, sem var til meðferðar hjá Skipulagsstofnun. Þessi drög að tillögu að matsáætlun sem hér eru auglýst koma í stað þeirrrar tillögu.

Matsvinnan vegna rannsóknaborananna er hafin og hér á síðunni má nálgast drög að tillögu að matsáætlun vegna borananna. Í tillögunni er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst. Fjallað er um þá umhverfisþætti sem teknir verða fyrir í matinu. Einnig er tilgreint hvaða gögn eru fyrir hendi sem nýtt verða við matið og hvaða rannsóknir er fyrirhugað að ráðast í vegna mats á umhverfisáhrifum.

Allir hafa rétt til að kynna sér drög að tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir. Vinsamlegast beinið fyrirspurnum, athugasemdum og ábendingum til Alberts Guðmundssonar, á netfangið albert hjá lvp.is með afriti til Hauks Einarssonar, á netfangið haukur hjá mannvit.is. Frestur til að gera athugasemdir er til 26. nóvember 2008.

Drög að tillögu að matsáætlun vegna rannsóknaborana við Kröflu

 

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica