Fréttasafn
Tillaga að matsáætlun vegna rannsóknaborana í Gjástykki
Landsvirkjun kynnir tillögu að matsáætlun vefna rannsóknaborana í Gjástykki.
Landsvirkjun áformar rannsóknaboranir í Gjástykki, í Þingeyjarsveit. Rannsóknirnar eru nauðsynlegur liður í öflun upplýsinga um hvort vinnanlegan jarðhita sé þar að finna. Landsvirkjun hefur ákveðið að meta umhverfisáhrif af borun allt að þriggja hola á sama borteig.
Hér á síðunni má nálgast tillögu að matsáætlun vegna rannsóknaborana. Í tillögunni er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst. Fjallað er um þá umhverfisþætti sem teknir verða fyrir í matinu. Einnig er tilgreint hvaða gögn eru fyrir hendi sem nýtt verða við matið og hvaða rannsóknir er fyrirhugað að ráðast í vegna mats á umhverfisáhrifum.
Allir hafa rétt til að kynna sér tillöguna og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síða en 14. janúar 2009 til Skipulagsstofnunar, Laugvaegi 166, 105 Reykajvík.
