Fréttasafn

Landsvirkjun styður Bóka- og skjalasafn Húnaþings vestra á Hvammstanga

27.2.2009

Mánudaginn 23. febrúar undirrituðu Sigríður Tryggvadóttir, yfirmaður safnsins og Friðrik Sophusson  samstarfssamning.
Samkvæmt honum færir Landsvirkjun Skjalasafninu fjárhæð sem ætluð er til að gera skýrslu um hin ýmsu gögn, bréf og annað sem til er og tilheyrir Jakob H. Líndal bónda og jarðfræðingi Lækjarmóti.
 
Er þetta þó nokkuð magn gagna, sem nú verður tekið til rannsókna og skilað greinargerð þar um. Markmiðið er að  leggja drög að sýningu um ævi og störf þessa merka Húnvetnings.
 
 Undirritun samnings við bókasafn Húnaþings vestra
 
 
 
Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica