Fréttasafn

Ný stjórn Landsvirkjunar

3.4.2009

Á aðalfundi Landsvirkjunar sem fram fór í dag var kjörin ný stjórn fyrirtækisins til eins árs.

Nýr stjórnarformaður Landsvirkjun er Bryndís Hlöðversdóttir aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst. Hún tekur við af Ingimundi Sigurpálssyni.

Aðrir í stjórn Landsvirkjunar eru:

Sigurbjörg Gísladóttir, efnafræðingur við Umhverfisstofnun, varaformaður
Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Póstsins
Páll Magnússon, bæjarritari í Kópavogi
Stefán Arnórsson, prófessor við Háskóla Íslands

Úr stjórn gengu Gylfi Árnason verkfræðingur og Jóna Jónsdóttir viðskiptafræðingur.

Varamenn í stjórn Landsvirkjunar eru:

Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent við Háskóla Íslands
Birgir Jónsson, jarðverkfræðingur við Háskóla Íslands
Huginn Freyr Þorsteinsson, aðjúnkt við Háskólann á Akureyri
Jóna Jónsdóttir, viðskiptafræðingur hjá Norðlenska á Akureyri
Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir, bóndi á Egilsstöðum

Viðhengi:
Ársskýrsla Landsvirkjunar 2008


Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica